|
Eldfljótir Laugaskokkarar á Meistaramóti Öldunga um helgina
Þórir, Halldór, Þorvaldur, Sumarliði og jú jafnvel líka Siggi Hansen stóðu sig allir frábærlega um helgina, rökuðu að sér verðlaunum og bætingum í 200, 800 og 3000 m hlaupum. Úrslitin eru öll að finna hér: http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib1798.htm
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 18. janúar 2012 14:21
Athugasemdir (6)
Fræðslufundur 18. janúar 2012Fræðslufundaröð Laugaskokks og World Class Undirbúningur og keppni í Laugavegshlaupinu og öðrum lengri utanvegahlaupum
Miðvikudagur 18. janúar 2012 kl. 20:00 í veitingasal Lauga Fræðslufundaröð Laugaskokks og World Class um málefni tengd hlaupum og hlaupaþjálfun verður fram haldið veturinn 2001-2012. Fjórði fundur vetrarins er helgaður Laugavegshlaupinu og sambærilegum lengri utanvegahlaupum. Fyrirlesari er Þorbergur Ingi Jónsson, vél- og orkutæknifræðingur. Á fyrirlestrinum fjallar Þorbergur um nauðsynlegan undirbúning fyrir Laugaveginn, praktískar æfingar, lýsir hlaupaleiðinni, keppnisstrategiu, brautaraðstoð, útbúnaði, og fjölmörgum öðrum praktískum þáttum sem snúa að því að geta tekið þátt í löngu utanvegahlaupi með góðum árangri. Einnig verður stuttlega fjallað um önnur utanvegahlaup á Íslandi. Þorbergur hefur til margra ára verið í fremstu röð íslenskra lang- og millivega hlaupara og hefur hann einkum lagt stund á utanvegahlaup. Hann á brautarmet í flestum utanvegahlaupum hérlendis, m.a. Laugaveginum, Barðsneshlaupinu og Jökulsárhlaupinu. Brautarmet hans í Laugavegshlaupinu er frá árinu 2009, 4:20:31. Fyrirlesturinn er ætlaður bæði vönum utanvegahlaupurum sem vilja bæta árangur sinn og þeim sem hyggjast æfa fyrir utanvegahlaup í fyrsta sinn. Áður en kynning Þorbergs hefst verður stutt kynning á tveimur ferðum tengdum utanvegahlaupum sem Bændaferðir standa fyrir á árinu. Annarsvegar einnar viku æfingabúiðr fyrir fjallahlaupara 7. - 14. júní nk. og hinsvegar þáttaka í Zugspitz Ultratrail fjallahlaupinu í Þýskalandi, 21. - 26.juní nk. Lítil Laugaskokksdama fæddÞað er mér mikil ánægja að tilkynna það að í nótt fæddist Boggu og Eyþóri lítil dama. Hún var 3410gr og 50cm með mikið dökkt hár. Pínulítil upprennandi íþróttastjarna :-) Móður og barni heilsast vel. Til hamingju Bogga og Eyþór!
Póstlisti LaugaskokksSæl öll! Ef þið viljið vera á póstlista Laugaskokks, sendið mér endilega netföngin ykkar á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Við reynum að nota póstlistann til að koma á framfæri upplýsingum um æfingar, atburði og annað sem viðkemur hópnum. hlaupakveðja, Bjössi |
|
|
|
|
Fleiri greinar...
|
|
|
|
|
| Síða 1 af 24 |
| Mán 06. febrúar Mánudagur 6.febrúar |
| Mið 08. febrúar Sprettir í kringum tjörnina. |
| Lau 11. febrúar Langt 18-25km |